Ólafsfell ehf., félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, greindi frá því í dag að það hefur keypt 8% hlut í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Viðskiptablaðið sagði frá því að Björgólfur væri að styrkja stöðu sína í fjölmiðlafyrirtækinu á föstudaginn. Seljandi er fjölskylda Ingileifar Hallgrímsdóttur.

Eftir kaupin tengist Björgólfur með beinum eða óbeinum hætti félögum sem fara með hreinan meirihluta eða í kringum 70% eignarhlut í Morgunblaðinu.