Björn Friðrik Brynjólfsson fréttamaður á RÚV verður aðstoðarmaður Einars Kristins Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra og hefur störf 1. desember, að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins.

Björn Friðrik útskrifaðist úr stjórnmálafræði frá H.Í. 1997 og hagnýtri fjölmiðlun ári síðar. Hann hefur verið fréttamaður hjá RÚV og stjórnandi þátta bæði á Rás 1 og Rás 2 frá 1999.