Björn L. Bergsson hrl., var í dag, af dómsmálaráðherra, settur til að fara með hlutverk og valdheimildir ríkissaksóknara gagnvart embætti sérstaks saksóknara.

Gegnir Björn því embætti ríkissaksóknara í öllum málum sem sérstakur saksóknari hefur til meðferðar. Er Björn settur til 1. júní 2010, en Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari hefur sagt sig frá þessum málaflokki til þess tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Björn L. Bergsson hrl. er fæddur 4. mars 1964 og lauk lagaprófi frá HÍ árið 1990. Hann hlaut héraðsdómsréttindi árið 1992 og varð hæstaréttarlögmaður árið 1999.

Hann starfaði sem fulltrúi á Lögfræðiskrifstofu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. 1990–1993. Hann var fulltrúi á Lögmannsstofu Arnmundar Backman hrl. 1993–1995 en er nú einn eigenda Mandat lögmannsstofu.

Björn var um árabil einn lögmanna Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Hann er stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík á sviði opinbers réttarfars. Þá var hann ráðgjafi setts ríkissaksóknara í svonefndu Baugsmáli.