Einkageirinn í Bandaríkjunum bætti við sig 43.000 störfum í október samkvæmt greiningarfyrirtækinu ADP.

Er það mun meira en spáð hafði verið en greiningaraðilar Bloomberg höfðu spáð 20.000 nýjum störfum.  Búist er við tölum frá stjórnvöldum á föstudag.