WOW air býður nú börnum yngri en 11 ára að ferðast frítt með foreldri til þriggja borga í Þýskalandi; Berlín, Köln og Stuttgart. Eitt barn getur ferðast frítt á hvern fullorðinn en þessi kostur hefur ekki boðist áður hér á landi. Flugfélög erlendis eins og SAS, Norwegian og Spanair hafa hinsvegar boðið upp á slík tilboð áður.

„Við hjá WOW air vildum veita allri fjölskyldunni tækifæri til að ferðast saman og vildum því prófa þessa skemmtilegu nýjung sem hefur reynst vel hjá erlendum flugfélögum. Við bjóðum upp á þrjár borgir í Þýskalandi sem allar eiga það sameiginlegt að bjóða upp á mikla afþreygingu fyrir alla fjölskylduna“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson markaðsstjóri WOW air í tilkynningu félagsins.