Breyting hefur verið gerð á úrvalsvísitölu Kauphallarinnar(OMXI8) samkvæmt niðurstöðum endurskoðunar sem fram fer á vísitölunni tvisvar á ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kauphöllinni. Í endurskoðaðri samsetningu kemur Skeljungur hf. (SKEL) nýtt inn í vísitöluna. Í staðinn dettur fasteignafélagið Reginn hf. út.
Endurskoðuð samsetning mun taka gildi 2. júlí næstkomandi. Verður ný samsetningin eftirfarandi:
- Eik fasteignafélag hf. (EIK)
- Hagar hf. (HAGA)
- Icelandair Group hf. (ICEAIR)
- Marel hf. (MARL)
- N1 hf. (N1)
- Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)
- Síminn hf. (SIMINN)
- Skeljungur hf. (SKEL)
OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum er hluti af vísitölunni.