Talsverðar breytingar hafa verið gerðar í endurskoðaðri fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2010. Endurskoðuð fjárhagsáætlunin var lögð fyrir bæjarráð í dag.

Breytingarnar helgast aðallega af 600 milljóna króna tekjulækkun þar sem atvinnutekjur hafa ekki skilað sér, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar.

Þá eru færðar inn í efnahag skuldbindingar sem áður stóðu utan efnahags. „Meðfylgjandi því fylgir að húsaleiga sem hefur öll farið inn í rekstrarkostnað er að hluta til tekin út, og færð sem afborgun á langtímaskuldbindingu, vexti og rekstrarkostnað. Á móti kemur að innri leiga er reiknuð á leigðar fasteignir og leigutekjur reiknaðar á móti í eignasjóð.“ segir í tilkynningu.

„Jafnframt þessum breytingum eru settar inn í fjárhagsáætlunina breyting semmörg sveitarfélög gerðu í fyrra s.s. eignamyndun af lóðum og lendum, sem ogendurmat á félagslegum íbúðum.“

Rekstrarkostnaður hækkar

Við breytingarnar hækkar rekstrarkostnaður Reykjanesbæjar um 339,1 milljón króna frá upphaflegri áætlun. Áætlað er að tekjur ársins verði 369,9 milljónum króna hærri en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. Er það meðal annars vegna breytinga á reikningsskilum á langtímahúsaleigu.

Afskriftir eru hækkaðar um 215,1 milljón króna vegna breytinga á reikningsliðnum með leigðar fasteignir.

„Samkvæmt þessu er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs, fyrir afskriftir og fjármagnsliði (svokölluð ebidta) verði jákvæð um 143,1 m.kr. Endurskoðuð áætlun gerir ráð fyrir að fjármagnsliðir verði neikvæðir um 77,8 m.kr.“

Áætlað er að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs verði í heild neikvæð um 199,7 milljónir króna.