Brynjar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins íhugar nú framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. „Því er ekki að neita að ég hef verið hvattur til framboðs. Í mínum huga er löggjafarstarfið það mikilvægasta í hverju landi. Ef ég tel mig njóta trausts hjá flokksmönnum til að sinna því er skylda að taka hvatningu af þessu tagi til alvarlegrar athugunar.“ Brynjar tekur þó fram að hann hafi ekki tekið neina ákvörðun enn.