Samhentir og Vörumerking gera skipulagsbreytingar á sölustarfsemi félaganna. Brynjar Viggósson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölusviðsins. Sölusviðið ber ábyrgð á sölu allra afurða Samhentra og Vörumerkingar svo sem umbúðum fyrir sjávarútveg, matvælavinnslu, garðyrkju, veitingahús og mötuneyti ásamt mjög breiðri vörulínu annarra vara.

Með þessari skipulagsbreytingu er lögð aukin áhersla á samhæfingu og skilvirkni sölu og þjónustu Samhentra og Vörumerkingar. Á sölusviðinu starfa alls um 20 manns.

Áður starfaði Brynjar hjá Eimskip í um 18 ár og starfaði þar síðastliðin ár sem forstöðumaður söludeildar áætlanaflutninga. Þar á undan starfaði Brynjar hjá Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna. Brynjar er með BSc í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri og MBA frá The Hague University. Brynjar er kvæntur Guðrúnu Bergsteinsdóttur lögmanni og eiga þau þrjú börn.