Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan mars 2015 er 123 stig sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands .

Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,9% (áhrif á vísitölu: -0,2%) og verð á innlendu efni og öðrum liðum hækkaði samtals um 0,4% (áhrif á vísitölu: 0,1%).

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 2,6%. Vísitalan gildir í apríl 2015.