CCP og Nexon hafa tilkynnt um samstarf, dreifingu og útgáfu á netleiknum EVE Online í Japan. Áformað er að japönsk útgáfa af leiknum komi á markað í haust, en með henni munu Japanir í fyrsta sinn getað spilað leikið á sínu móðurmáli. CCP hefur þegar gefið ECE Online út í þýskri, rússneskri og kínverskri útgáfu, samhliða upphaflegu útgáfunni sem er á ensku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá CCP. „Með hliðsjón af frábæru orðspori Nexon sem leiðandi leikjaframleiðanda og útgefanda í Asíu voru þeir okkar fyrsta val sem samstarfsaðili við að gera leikinn aðgengilegri fyrir stækkandi aðdáendahóp EVE í Japan” segir Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdastjóri CCP í sameiginlegri tilkynningu CCP og Nexon.

Nexon er einn öflugasti útgefandi og dreifingaraðili tölvuleikja í Japan og Asíu. Fyrirtækið er með 28 milljónir viðskiptavina gegnum sitt eigið sölunet og með starfsemi í 72 löndum. Samstarfið er liður í alþjóðlegri sókn CCP, sem lengi hefur áformað að markaðsetja EVE Online á Japansmarkað, sem er fjórði stærsti markaður heims í sölu á netleikjum.