CCP hf. og MP Banki hf. hafa undirritað samninga um endurfjármögnun CCP og flutning allra bankaviðskipta félagsins á Íslandi til MP Banka.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu en jafnframt kemur fram að í kjölfar samningsins hefur CCP greitt upp víxla félagsins sem skráðir voru í Kauphöll og voru á gjalddaga þann 28. október.

Þá kemur jafnframt fram að önnur eldri og óhagstæðari lán hafa einnig verið greidd upp og í stað þeirra og víxlanna kemur ný lánsfjármögnun til tveggja ára.

„Félagið nær þarna hagstæðri áframhaldandi lánsfjármögnun í íslenskri krónu með miklum sveigjanleika, sem hentar okkar rekstri. Frumkvæði MP Banka, elsta starfandi banka landsins, í því að efna til samstarfs við öflugt nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti, er til fyrirmyndar,“ segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP í tilkynningunni.

Þá kemur fram að rekstur CCP hefur gengið vel og stöðug aukning er í fjölda áskrifenda að sýndarheiminum EVE-Online. Reksturinn skilaði 6,4 milljónum Bandaríkjadala hagnaði (um 800 milljónum króna) á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við rétt rúmar 2 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Tekjur af EVE-Online tölvuleiknum námu 25,4 milljónum dala (um 3.180 milljónum króna) fyrri helming þessa árs en það er rúmlega 4 milljóna dala aukning frá í fyrra.

„Við erum sérstaklega ánægð að fá CCP í viðskipti til okkar”, segir Árni Maríasson, forstöðumaður Lánasviðs MP Banka í tilkynningunni.

„Við höfum kynnst rekstri CCP vel og teljum fyrirtækið vera afar spennandi. Þá er CCP að gera góða hluti á alþjóðlegum mörkuðum og er að skapa landinu miklar gjaldeyristekjur.”