Century Aluminum [ CENX ] tilkynnti í dag um aukið hlutafjárútboð en samkvæmt tilkynningu frá félaginu stendur til að bjóða 6,5 milljón hluti til sölu.

Þá munu viðskiptamenn útboðsins hafa 30 dags forkaupsrétt á 975 þúsund nýjum hlutum í félaginu samkvæmt tilkynningu.

Miklar sveiflur hafa verið á hlutafé Century í gær og í dag. Í gær hækkaði félagið um 7,6% í Kauphöllinni en hefur það sem af er degi lækkað um 13,1%.