Stúlknatríóið The Charlies, sem sló í gegn hér fyrir að verða tíu árum sem hljómsveitin Nylon, var í viðtali í netþættinum Rock Star Health and Fitness á dögunum.

Í þættinum ræddu þær mataræði, sögðu popp hollt millimál, töluðu um Ísland, tónlist, drukku íslenskt vatn, gerðu nokkrar jógaæfingar með þáttastjórnanda og tóku síðan lagið.