Breska dagblaðið Daily Mail leiðréttir í dag frétt sem blaðið birti fyrir tveimur dögum um að breskir sparifjáreigendur hafi í stórum stíl tekið út sparifé sitt af reikningum Kaupþings í Bretlandi, Kaupthing Edge.

Segir í leiðréttingunni að blaðið hafi fengið upplýsingar um að síðasta vika hafi verið sú besta hjá bankanum í Bretlandi hingað til. Blaðið segist leiðrétta fréttina með ánægju.