Danske Bank mun segja upp 250 starfsmönnum á þriðjudaginn. Þetta fullyrðir danski viðskiptavefurinn Finanswatch.dk. Forsvarsmenn bankans staðfesta ekki fréttina í samtali við danska ríkisútvarpið en neita henni ekki heldur. Fullyrt er að uppsagnir verði helst á mannauðssviði, lögfræðisviði og sviði fjármála og hagfræði.

Nýjasta fjórðungsuppgjör bankans sýnir að afkoma bankans er einum milljarði lakari en gert hafði verið ráð fyrir. Það samsvarar 20 milljörðum íslenskra króna.