Claus Hjort Frederiksen, atvinnumálaráðherra Danmerkur, og Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, ræddu ýmis málefni á sviði velferðar- og vinnumála á fundi í gærmorgun.

Ráðherrann er í stuttri heimsókn til þess að kynna sér þessi mál á Íslandi.

Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu ræddu ráðherrarnir ræddu sérstaklega um starfsendurhæfingarmál, þátttöku eldra fólks á vinnumarkaði og málefni innflytjenda og erlendra ríkisborgara sem starfa hér á landi.

Auk fundar með ráðherra og sérfræðingum félags- og tryggingamálaráðuneytisins mun Frederiksen hitta fulltrúa frá Vinnumálastofnun og innflytjendaráði, heimsækja Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins.

Í dag fer hann til Akureyrar þar sem hann heimsækir meðal annars Alþjóðastofu Norðurlands og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, auk þess sem hann skoðar Fjölsmiðjuna og kynnir sér fyrirkomulag starfsendurhæfingar og starfsemi á vegum Fjölmenningarseturs á Austurlandi.