Gagnageymslufyrirtækið Data Íslandia er að hefja samstarf við eitt stærsta ráðgjafa- og vottunarfyrirtæki á Bretlandseyjum í loftlagsmálum, The CarbonNeutral Company, segir í tilkynningu frá Data Íslandia.

,,Data Íslandia er fyrsta íslenska fyrirtækið sem óskar eftir samstarfi við okkur og er það sönn ánægja að kynna þetta fyrirtæki sem kemur frá landi sem stendur fremst í heimi á sviði endurnýjalegrar hreinnar orku," sagði Josey Crane, viðskiptastjóri hjá CarbonNeutral.

Verndun loftlags hefur verið mikið í fréttum upp á síðkastið og hafa fyrirtækin sameinað krafta sína til að beina athygli annarra fyrirtækja á mikilvægi þessa málefnis. Í bresku viðskiptaumhverfi eru gerðar auknar kröfur um að fyrirtæki séu umhverfisvottuð og að þau hafi umhverfisjónarmið að leiðarljósi, segir í tilkynningu Delta Íslandia.

,,Samstarfið mun auðvelda bæði evrópskum og breskum fyrirtækjum að stunda viðskipti á Íslandi vegna þess að græn vottun getur haft úrslitaáhrif á þessum viðskiptamörkuðum.  Við erum með þessu m.a. að aðlaga íslenskt viðskiptaumhverfi að breskum og evrópskum viðmiðum,? sagði Sol Squire, framkvæmdastjóri Data Íslandia.

Í tilkynningu Delta Íslandia kemur fram að gagnamiðstöðvar noti gríðarlegt magn af orku. Samkvæmt lögum og í sumum tilfellum alþjóðalögum þurfa fyrirtæki að vista tiltekin rafræn gögn í mörg ár. Stórfyrirtæki sjá því hagkvæmni í því að vista gögnin á Íslandi.

Aðalstarfsemi Data Íslandia felst í því að veita alþjóðlegum stórfyrirtækjum og opinberum stofnunum þjónustu við langtíma hýsingu á rafrænum gögnum og margþætta stýringu á þeim.