Davíð Stefánsson er hættur hjá Geysi Green Energy. Í tilkynningu frá Davíð segir að þessi ákvörðun sé tekin í fullri sátt við félagið og stjórnendur þess og megi öðru fremur rekja hana til þeirra gjörbreyttu aðstæðna, sem vart þurfi að útskýra mörgum orðum.

Davíð hefur starfað hjá félaginu síðan haustið 2007. Hann hefur unnið að margvíslegum verkefnum tengdum orkumálum hjá Geysi Green Energy og þar áður í ráðgjafarstörfum fyrir flest orkufyrirtæki landsins, en einnig sem stjórnarformaður RES Orkuskóla á Akureyri.