Heildarvelta debetkorta í september var 30,9 milljarðar króna samkvæmt tölum Seðlabankans. Það er 1,7% samdráttur miðað við september í fyrra og 9,2% samdráttur miðað við ágúst síðastliðinn.

Heildarvelta kreditkorta jókst um 3,2% í september miðað við sama mánuði í fyrra en dróst saman um 1,8% frá fyrri mánuði.