Gengi hlutabréfa í deCode fór í dag niður fyrir einn Bandaríkjadal á hlut. Samkvæmt fréttavefnum T24 var gengi bréfa DeCode 3,68 dalir á hlut í lok árs 2007 en fór í dag niður í 98 cent á hlut. Fyrir tveimur árum var gengið nálægt 7 dölum á hlut.

Klukkan 16:00 í dag höfðu bréf DeCode lækkað um 3,9%.