„Vinnudeila ISAVIA og flugumferðastjóra er Icelandair óviðkomandi, en hún veldur okkur og viðskiptavinum okkar óþægindum og fjárhagstjóni. Við óttumst að þetta sé aðeins upphafið að frekari aðgerðum og skorum á deiluaðila að leysa úr ágreiningi sínum svo ekki komi til alvarlegra afleiðinga fyrir ferðaþjónustuna nú í upphafi sumars", er haft eftiir Guðjóni Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir að tilkynning ISAVIA þess efnis að aðeins verði heimilað neyðarflug um Keflavíkurflugvöll frá kl. 20.00 í dag, föstudag, til kl. 07.00 á morgun, laugardag, vegna aðgerða flugumferðarstjóra muni hafa töluverð áhrif á áætlunarflug Icelandair næsta sólarhringinn.

Flugi FI-212 frá Keflavíkurflugvelli til Kaupmannahafnar í dag verður flýtt um 30 mínútur og verður brottför kl. 12.45. Þá verður flugi FI-213 frá Kaupmannahöfn í kvöld flýtt um 45 mínútur og verður brottför kl. 19.00 að staðartíma og mun sú vél lenda á Keflavíkurflugvelli kl. 20.00. Flug FI-455 frá London í kvöld mun lenda á Akureyrarflugvelli kl. 22.50 og verða farþegar fluttir til Reykjavíkur með rútum. Þá má búast við því að eins til tveggja klukkustunda seinkun verði á öllu flugi Icelandair í fyrramálið vegna áðurnefndra takmarkana

„Viðskiptavinir Icelandair eru hvattir til þess að fylgjast vel með upplýsingum um komu- og brottfarartíma því breytingar geta orðið með skömmum fyrirvara," segir í tilkynningu frá Icelandair.