Áætlunarflug Delta Air Lines á milli New York og Keflavíkur hefst laugardaginn 2. júní. Flogið verður 5 sinnum í viku yfir sumarmánuðina.

Notast verður við 174 sæta Boeing 757-200 vél á flugleiðinni frá Keflavík.

Í tilkynningu segir að í fyrra flugu um 20.000 farþegar til Íslands á vegum Delta og dvöldu þeir að meðaltali í fjóra til sex daga hér á landi. Flestir keyptu þeir gistingu á suð-vestur horninu en fóru í styttri skoðunarferðir út á land

Bob Hannah, svæðisstjóri sölumála hjá Delta, segist hlakka til þess að flytja á ný þúsundir gesta frá Bandaríkjunum til Íslands samkvæmt fréttatilkynningu frá flugfélaginu.

Áætluð brottför verður klukkan 11:50.