Húsavíkurstofa, sameiginlegur vettvangur ferðaþjónustuaðila á Húsavík, gagnrýnir harðlega að nauðsynlegar samgönguframkvæmdir á landsbyggðinni náii ekki fram að ganga í nýlega samþykktri samgönguáætlun Alþingis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Húsavíkurstofu.

Þar kemur meðal annars fram að miðað við boðaðar breytingar er ljóst að Dettifossvegur verði ekki kláraður á árinu 2018 líkt og áður hafði verið stefnt að. „Þetta er áfall fyrir ferðaþjónustuuppbyggingu á Norðurlandi og þar með samfélagið í heild sinni,“ segir í tilkynningunni.

Húsavíkurstofa tekur enn fremur fram að hún: „furðar sig á því að stjórnmálamenn umgangist samgönguáætlun með þessum hætti sem gengur  þvert gegn yfirlýsingum þeirra í aðdraganda nýafstaðinna kosningar um nauðsyn þess að setja meira fjármagn í uppbyggingu innviða, ekki síst til vegamála. Fyrir ferðaþjónustu á Íslandi er viðhald og uppbygging vegakerfisins og annarra samgöngumannvirkja einn mikilvægasti þáttturinn til þess að atvinnugreinin nái að vaxa og dafna öllum landsmönnum til heilla. Áframhaldandi fjársvelti til samgöngumála mun leiða til hruns í samgöngukerfinu innan skamms tíma sem mun koma hart niður á ferðaþjónustu, öðrum atvinnugreinum og íbúum landsins“.

„Húsavíkurstofa skorar á Alþingi að tryggja fulla fjármögnun á lífsnauðsynlegum samgönguframkvæmdum sem efla munu innviði og atvinnutækifæri á landsbyggðinni,“ segir að lokum í tilkynningunni.