Gengisvísitalan var 202,8% við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 3,1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 6,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan veiktist um 5,1% í gær og hélt áfram að veikjast eftir að markaðir opnuðu í morgun. Gengisvístalan náði hámarki í hádeginu þegar hún var 207,6 stig en nokkuð hægðist á veikingunni seinni part dags.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð miðað við markaðsgengi, sem hefur aldrei verið hærra en nú.

Opinbert gengi var í morgun 201,2 stig, sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 190,5 stig, sem þá var jafnframt það hæsta frá upphafi.

Krónan hefur nú veikst um 11,8% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 109,6 krónum, Evran í 153,8 krónum og Sterlingspundið í 194,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 97,7 krónum, japanskt jen í 1 krónu og danska krónan í 20,6 krónum.