Ríkiskaup hafa nú auglýst, fyrir hönd dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, eftir húsnæði til leigu til tveggja ára undir fangelsi.

Þetta kemur fram á vef dóms- og kirkjumálaráðuneytisins en gerð er krafa um að húsnæðið sé utan þéttbýlis og fjarlægð frá Litla-Hrauni sé ekki meiri en svo að möguleikar séu á að samnýta þjónustu við fangelsið.

Þá kemur fram að húsnæðið skuli rýma 16-26 einstaklinga í einstaklings-og/eða tveggja manna herbergjum.

Sjá nánar á vef ráðuneytisins.