Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. október 2010 verða vextir sem hér segir:
• Vextir af óverðtryggðum lánum lækka úr 7,75% í 6,75%. • Vextir verðtryggðra lána haldast óbreyttir og verða því áfram 4,8%. • Vextir af skaðabótakröfum lækka úr 5,2% í 4,5%.
Grunnur dráttarvaxta lækkaði um 0,75% við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands hinn 22. september sl. og því lækka dráttarvextir úr 14,0% í 13,25% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2010.
Þetta segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.