Niðurstöður nýs verðmats DVB Bank á Icelandair Group gerir ráð fyrir að verðmæti félagsins verði á bilinu 16,4 til 25,6 milljarða króna eftir endurskipulagningu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group til Kauphallarinnar en í tengslum við fyrirhugaða hlutafjáraukningu, sem er hluti af endurskipulagningu félagsins, réð Icelandair Group þýska bankann DVB Bank til að framkvæma verðmat á félaginu vegna mögulegrar aðkomu nýrra fjárfesta að Icelandair Group.

Í tilkynningunni kemur fram að DVB var upphaflega ráðgjafi íslenskra fjármálastofnana í endurskipulagningarferlinu og hafa fulltrúar DVB verið þátttakendur í ferlinu frá miðju ári 2009.

Við gerð verðmatsins höfðu fulltrúar DVB aðgang að fimm ára fjárhagsáætlunum Icelandair Group og miðar það að því að áætla verðmæti félagsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu þess. Þá segir í tilkynningunni að DVB byggir verðmat sitt mati á núvirtu frjálsu fjárstreymi og á samanburði við kennitölumargfaldara sambærilegra fyrirtækja. Verðmæti Loftleiða var hins vegar aðeins metið út frá núvirtu frjálsu fjárstreymi.

„Mikilvægt er að árétta að verðmatið tekur ekki til hlutabréfa Icelandair Group sem skráð eru í Kauphöll Íslands og fjárfestar ættu ekki að nýta verðmatið sem grundvöll fyrir fjárfestingarákvörðun,“ segir í tilkynningunni.

„Forsendur verðmatsins byggja á því að fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækisins verði til lykta leidd á farsælan máta sem m.a. gerir ráð fyrir verulegum breytingum á efnahagsreikningi Icelandair Group hf.“

Rétt er að taka fram að með óformlegum útreikningum má gera ráð fyrir að núverandi verðmæti Icelandair Group sé um 3,3 milljarðar þannig að verðmat DVB er talsvert hærra. Um 1 milljarður hluta er skráður á markaði og núverandi gengi er 3,3 (og hefur lítið hreyfst síðustu vikur).