Frosti Bergsson fjárfestir hefur lagt inn tilboð í allt hlutafé Opinna kerfa ehf. ,eða nánar tiltekið þá starfsemi sem fer fram undir nafni fyrirtækisins hér á landi. Frosti staðfesti þetta í samtali við Viðskiptablaðið en hann rekur fjárfestingafélagið F. Bergsson ehf. Tilboðið er gert í nafni óstofnaðs félags í hans nafni og sagðist Frosti aðspurður standa einn að tilboðinu. "Ég fékk vink og gerði í framhaldi af því tilboð sem var tekið og nú er í gangi áreiðanleikakönnun sem ætti að liggja fyrir á föstudaginn, sagði Frosti.

Meira í Viðskiptablaðinu í dag.