Glitnir og Kaupþing lánuðu Eglu Invest BV., hollensku félagi í eigu Ólafs Ólafssonar, tugi milljarða króna á árinu 2008 gegn veðum í bréfum hans í Kaupþingi. Nú er staðfest að ekkert mun fást upp í þá skuld.

25 milljarða skuld Eglu Invest BV, við Glitni og Kaupþing mun aldrei verða greidd. Egla Invest, sem er skráð í Hollandi, var í eigu Ólafs Ólafssonar og fékk upphæðirnar lánaðar á árinu 2008 til að borga upp lán hjá Citibank sem sætti veðkalli.

Það lán hafði verið veitt til Ólafs til að endurfjármagna hlutabréfaeign hans í Kaupþingi. Einu veðin sem íslensku bankarnir tóku voru í bréfunum sjálfum. Þar sem þau eru nú verðlaus mun skuldin, sem liggur hjá skilanefndum bankanna, aldrei verða greidd.

-Nánar er fjallað um mál Eglu Invest í Viðskiptablaðinu á morgun .

Meðal annars efnis í Viðskiptablaðinu á morgun er:

  • Hagstæðari Icesave niðurstaða í sjónmáli
  • Horfði á hryllingsmyndina verða til: Viðtal við Tryggva Pálsson, framkvæmdarstjóra fjármálasviðs Seðlabankans
  • PWC rannsakar Byr
  • Úrræði bankanna við að taka á skuldavanda krufinn
  • Miðvörður ehf, félag í eigu starfsmanna SpKef, gjaldþrota
  • Dress up games greiddi yfir 100 milljónir í arð
  • Fjárlögin 2011 í máli og myndum
  • Sérblað um tölvur og tækni
  • Iceland Airwaves glæðir efnahagslífið

Og margt, margt fleira..