Gengið hefur verið frá kaupum á rekstri og eignum Ölvisholt Brugghúss af þrotabúi. Félagið sem kaupir reksturinn heitir Eignarhaldsfélagið Flóinn ehf.  Að því standa Karl K. Karlsson, Eignarhaldsfélag Suðurlands, Jón E. Gunnlaugsson, Bjarni Einarsson og nokkrir minni fjárfestar. Þetta kemur fram á Vísi.is.

Þar kemur fram að í fréttatilkynningu vegna viðskiptanna segir að rekstur hafi verið í lágmarki í brugghúsinu undanfarna mánuði, eftir að rekstur félagsins fór í þrot á síðasta ári og Landsbankinn yfirtók rekstur þess eftir algjöran forsendubrest í kjölfar bankahrunsins.

Frá þeim tíma hafa fyrrum eigendur félagsins unnið að endurfjármögnun þess og fengið til liðs áðurtalda aðila.  Karl K.Karlsson hefur lengi starfað með Ölvisholt Brugghúsi og séð um dreifingu á vörum þess á innanlandsmarkaði.

Í fréttatilkynningunni segir jafnframt a Eignarhaldsfélag Suðurlands sé  rekið af sveitarfélögum á Suðurlandi til fjárfestinga í fyrirtækjum á svæðinu og því sé ánægjulegt að sjá að heimamenn vilji sjá áframhaldandi rekstur á þeim grunni sem hafði verið lagður.

Ölvisholt hefur frá byrjun lagt áherslu á útflutning og hefur selt vörur til Svíþjóðar, Kanada og Danmerkur. Vörumerki félagsins, Freyja, Skjálfti, Móri og Lava hafa tryggt sig í sessi á öllum mörkuðum og salan aukist jafnt og þétt frá byrjun.

Stjórn félagsins verður skipuð eftirfarandi:
Arnbjörn Ólafsson, fjármálastjóri Karl K. Karlsson
Þorbjörn Jónsson, f.h. Eignarhaldsfélags Suðurlands
Jón E. Gunnlaugsson, sem einnig verður framkvæmdastjóri félagsins

Valgeir Valgeirsson verður áfram bruggmeistari Ölvisholts.