Rúmlega 13% aukning varð á eigum lífeyrissjóðanna fyrstu 8 mánuðu ársins miðað við eignir í árslok 2005. Eignir námu alls rúmlega 1.380 milljarða króna í ágústlok miðað við tæplega 1.220 milljarða króna í árslok 2005 segir í frétt á heimasíðu Landssambands lífeyrissjóða.

Aukningin nemur því um 160 milljarða króna. Mesta aukningin var í erlendum verðbréfum eða 27,4%. Sjóðfélagalán hafa aukist um 14,7% á umræddu tímabili og nema nú lán til sjóðfélaga um 7,7% af heildareignum sjóðanna. Seðlabanki Íslands tók saman þessar upplýsingar.