Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu um 1.293,4 milljörðum króna í lok október og lækkuðu um 13,9 milljarða í mánuðinum. Útlán og markaðsverðbréf lækkuðu um tæpa 11 milljarða og námu 1.159 milljörðum í lok október.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en þar segir að lækkunin skýrist að mestu af markaðsskuldabréfum innlánsstofnana sem lækkuðu um tæpa 10,4 milljarða króna (-50%) í mánuðinum.

Innstæður í Seðlabankanum hækkuðu um 10,3 milljarða (58%) milli mánaða en kröfur á lánastofnanir lækkuðu um 12,3 milljarða.