Eimskipafélag Íslands hefur samið við skuldabréfaeigendur í flokkum HFEIM 071 og HFEIM 072 um að falla frá rétti sínum til að gjaldfella kröfu sína á hendur Eimskipi fari hlutfall bókfærðs eigin fjár félagsins undir 25%. Eimskip hefur þegar fengið undirritað samþykki 95% skuldabréfaeigenda og áfram er unnið að því að ná samkomulagi við þann hluta eigenda skuldabréfa sem hefur ekki gengið frá samningi við félagið.

„Eins og áður hefur komið fram vinnur félagið að sölu eigna og því mikilvægt að skapa frið um félagið á meðan söluferli er í gangi. Stjórnendur félagsins vinna nú að endurskipulagningu ásamt endurfjármögnun félagsins og er stuðningur skuldabréfaeigenda því mikilvægt skref í þeirri vinnu. Með því að veita Eimskip þetta svigrúm er verið að vernda eignir þess og þar með að takmarka áhættu kröfuhafa. Flutningastarfsemi Eimskips er í góðum rekstri, dagleg starfsemi og þjónusta við viðskiptavini er sem áður tryggð. Söluferli eigna gengur samkvæmt áætlun sem mun styrkja verulega fjárhagsstöðu félagsins,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélags Íslands, í fréttatilkynningu frá félaginu.

Eimskip hefur nú heimild til að fresta gjalddögum skuldabréfanna þar til 30 dögum eftir sölu á frystigeymslustarfsemi félagsins í Norður-Ameríku, en þó eigi síðar en 30. júní 2009. Þá verður öllum vaxtagreiðslum frestað til gjalddaga og gjaldfallnir vextir bætast við höfuðstól.