Einar Árnason hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Einar hefur þegar hafið störf.

Einar Árnason er fæddur 1956, lauk hagfræðiprófi frá University College í London árið 1979 og stundaði framhaldsnám í þjóðhagfræði við London School of Economics and Political Science árin 1979 til 1981.

Hann var hagfræðingur á Þjóðhagsstofnun árin 1981 til 1986, hefur lengi verið sjálfstætt starfandi og þá meðal annars sem hagfræðingur Eflingar, Félags eldri borgara og Landssambands eldri borgara um árabil. Þá var Einar hagfræðingur BSRB árin 2007 til 2010.

Halla Gunnarsdóttir aðstoðarmaður dómsmála- og mannréttindaráðherra

Þá hefur Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður, verið ráðin aðstoðarmaður Ögmundar í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu. Hún hefur einnig hafið störf. Halla Gunnarsdóttir er kennari að mennt og með meistarapróf í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands. Hún starfaði sem blaðamaður frá 2003-2009 og var aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar í heilbrigðisráðuneytinu meðan hann gegndi því embætti. Síðastliðið ár hefur Halla fengist við ritstörf og við fræðimennsku á sviði öryggis- og varnarmála.