Stjórn Og Vodafone (Og fjarskipta hf.) hefur ákveðið að ráða Eirík S. Jóhannsson forstjóra félagsins. Eiríkur mun koma til starfa 26. október nk. Eiríkur hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Kaldbaks hf. á Akureyri. Áður var hann kaupfélagsstjóri KEA og þar á undan svæðisstjóri hjá Landsbanka Íslands hf. Hann er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og á að baki framhaldsnám í alþjóðahagfræði og fjármálum frá Vanderbilt University í Bandaríkjunum.

Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Og Vodafone segir mikinn feng af Eiríki og fagnar því að hann hafi fallist á að ganga til liðs við félagið. Hann styrki þann góða hóp sem lagt hefur hart að sér síðustu misseri að skapa þau verðmæti sem í félaginu búa