Ánægja með störf Barack Obama Bandaríkjaforseta hefur aldrei verið minni en nú og eru aðeins 41% þjóðarinnar er ánægð með störf hans.

Þrívegis hefur ánægjan verið svo lítil með störf Obama, tvívegis í ágúst 2010 og einu sinni í október 2010. Könnunin Gallup var framkvæmd dagana 12-14 apríl sl.

Gallup.  Ánægja með störf Obama.
Gallup. Ánægja með störf Obama.
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Demókratar eru mun ánægðari með störf forsetans, eins og gefur að skilja.  77% demókrata eru ánægðir með forsetann, 35% óháðra og 14% repúblíkana. Síðasta árið hefur ánægjan með störf forsetans hæst farið í 51%. Gallup hefur mælt ánægju með störf forseta Bandaríkjanna frá 1945.