Enginn kvaddi sér hlkjóðs þegar þriðja umræða um nauðungarsölufrumvarp Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra fór fram á Alþingi í dag.

Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að heimilum sem eru í alvarlegum fjárhagsvanda verði gefin tækifæri til að meta hvort nýboðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna skuldavanda heimilanna geti komið í veg fyrir nauðungarsölu.