Vegna fjölmiðlaumfjöllunar í Hollandi og á Íslandi um hugsanlega sameiningu Marel og Stork Food System, vill Marel koma á framfæri að félögin hafa átt í óformlegum viðræðum um hugsanlega nánara samstarf þeirra, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Engar formlegar viðræður eru í gangi um sameiningu Marels og Stork Food System, segir í tilkynningunni.

Eins og fram kom í lýsingu Marels er birt var í Kauphöll Íslands í september síðastliðnum, þá stofnaði Marel ásamt Eyri Invest ehf. og Landsbanka Íslands hf. eignarhaldsfélagið LME ehf. í febrúar á þessu ári í þeim tilgangi að kaupa hlutafé í hollenska félaginu Stork NV.

Fjárfestingin var gerð til að stuðla að áframhaldandi góðu samstarfi Marel og Stork Food System, en félögin hafa átt í nánu samstarfi síðustu 8 ár. Eignarhlutur LME ehf. í Stork NV. er óbreyttur frá útgáfu lýsingarinnar, segir í tilkynningunni.