Landsnet hefur ráðið Engilráð Ósk Einarsdóttir í starf verkefnastjóra gæðamála og samfélagsábyrgðar og mun hún starfa á Stjórnunarsviði við uppbyggingu á gæðamálum og samfélagsábyrgð hjá Landsneti. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

„Engilráð hefur síðan 2012 starfað hjá embætti Tollstjóra. Meðal verksviða hjá henni þar hafa verið verkefnastjórnun, gæða- og áhættustjórnun, ferlagreiningar, upplýsingaöryggi og innri úttektir. Hún kenndi rekstrarverkfræði við Háskóla Reykjavíkur árin 2012-2013 og vann á árunum 2008-2010 hjá Deloitte í áhættustýringum við ytri úttektir viðskiptaferla og tölvuöryggis“ segir í tilkynningunni.

Engilráð er með meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands en lokaárið tók hún í skiptinámi við Karlsruhe Institute of Technology. Hún er einnig rúmlega hálfnuð með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun.

„Ég er spennt að takast á við þau verkefni sem fram undan eru hjá Landsneti. Með samvinnu milli starfsfólks eru allir vegir færir og möguleikarnir miklir. Virðing fyrir þörfum samfélagsins og umhverfisins ásamt því að sýna ábyrgð í verki eru lykilþættir hvað varðar uppbyggingu stjórnunarkerfis. Landsnet er fyrirtæki með flotta framtíðarsýn og viljinn innanhúss að vera í sífelldri þróun hvað varðar tækni og þjónustu er góður. Gildin hjá Landsneti samræmist því gildum sem þarf til að hafa gott gæðaumhverfi og ekki síst að byggja upp samfélagslega ábyrgð hjá fyrirtækinu“ er haft eftir Engilráð í tilkynningunni.