Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,02% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.123,48 stigum. Gengi bréfa Fjarskipta, móðurfélags Vodafone, lækkaði um 4,67% í dag, bréf Regins lækkuðu um 0,40% og bréf Icelandair um 0,24%. Bréf TM Hækkuðu aftur á móti um 2,13% og VÍS um 1,32%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 2,3 milljörðum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,05% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,03% og sá óverðtryggði um 0,11%. Velta á skuldabréfamarkaði nam einungis 2,4 milljörðum króna og þar af var velta með óverðtryggð bréf 1,9 milljarðar.