Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 343,2 stig í desember 2008 og lækkaði um 1,3% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá ríkisins (áður Fasteignamati ríkisins).

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár.

Þar sést hvernig íbúðaverð hefur lækkað nánast samfellt en vísitala íbúðaverðs náði hámarki fyrir ári síðan, í október 2007, þegar hún mældist 357,3 stig.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,8%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 1,5% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 2,5%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.