Enska pundið hefur hækkað hratt gagnvart Bandaríkjadal í dag og hefur ekki verið hærra í 26 ár. Þegar pundið stóð hæðst í dag var eitt pund jafngildi 2.066 dala en hefur lækkað lítillega eftir því sem liðið hefur á daginn og lækkað í 2.064 dali.

Pundið hefur einnig hækkað gagnvart evrunni í dag.