Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnmálafræðingur og starfsmaður í markaðsdeild á viðskiptabankasviði Landsbankans, sækist eftir 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem haldið verður um miðjan næsta mánuð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Erlu Ósk þar sem segir einnig að hún sitji nú í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, sé 2. varaþingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi syðra, sé formaður fjölskyldunefndar flokksins og sitji í stjórn SUS.

Um framboð sitt segir Erla Ósk þetta í tilkynningunni:

„Það er mjög rík krafa uppi  í samfélaginu um endurnýjun og breyttar áherslur. Sú krafa er einnig til staðar í  Sjálfstæðisflokknum. Ég hef að vandlega skoðuðu máli tekið þá ákvörðun að bjóða fram mína krafta fyrir Sjálfstæðisflokkinn í aðdraganda komandi kosninga. Ég hef mikla reynslu af starfi innan Sjálfstæðisflokksins og tel að nú þurfi á nýjan leik að setja grunngildi sjálfstæðisstefnunnar í öndvegi. Þau gildi munu best nýtast við endurreisn efnahags þjóðarinnar.  Ég vil einbeita mér að því að efla lífskjör Íslendinga og um leið stuðla að hagsæld og auknum tækifærum einstaklingsins. Ég tel jafnframt mikilvægt að við endurheimtum virðingu fyrir lýðræðinu.

Ég hef gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn undanfarin ár og sit meðal annars í  Miðstjórn flokksins.  Á yfirstandandi kjörtímabili hef ég verið varaþingmaður og í tvígang tekið sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ég veiti fjölskyldunefnd flokkins formennsku og á sæti í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS).

Auk þessa hef ég víðtæka reynslu af félagsstörfum.  Ég var formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík 2006 – 2008. Stúdentaráðsfulltrúi og framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands fyrir Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, ásamt því að vera formaður Politicu, félags stjórnmálafræðinema.

Ég er fædd og uppalin í Stykkishólmi. Ég er stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands og stunda meistarnám í opinberri stjórnsýslu (MPA). Ég starfa í dag í markaðsdeild á viðskiptabankasviði Landsbankans.“