Breska lággjaldaflugfélagið easyJet tilkynnti á föstudaginn að félagið hyggst slaka á hömlum um eignarhald. Sérfræðingar telja að breytingarnar muni verða til þess að FL Group auki hlut sinn enn frekar, en félagið á um 16% hlut í easyJet.

Í tilkynningu frá easyJet segir að nú sé erlendum aðilum leyfilegt að eignast allt að 45% hlut í félaginu, en hámarkið var áður 40%. Breytingin er gerð til að gefa ?hluthöfum félagsins meiri sveigjanleika," segir í tilkynningunni.

Sérfræðingar búast við því að FL Group muni auka hlut sinn á næstunni en taka þó fram að það reynist erfitt að taka yfir easyJet þar sem stofnandi félagsins, Stelios Haji-Ioannou, og fjölskylda ráði yfir um 40% hlut í félaginu. Stelios er einnig í stjórn félagsins og hefur sagt að hann muni ekki selja hlut sinn í félaginu.