Erna Gísladóttir verður áfram stjórnarformaður Sjóvá-Almennra trygginga, en kosið var i stjórnina i gær. Tómas Kristjánsson verður jafnframt áfram varaformaður.

Heimir V. Haraldsson og Ingi Jóhann Guðmundsson verða áfram í stjórn en Hjördís E. Harðardóttir kemur inn í staðinn fyrir Kristínu Haraldsdóttur.

Í varastjórn félagsins voru kjörin Anna Guðmundsdóttir, Erna Hlíf Jónsdóttir, Garðar G. Gíslason, Jón Diðrik Jónsson og Leifur A. Haraldsson.