Þriðjudagskvöldið 29. apríl var yfirlitssýning á verkum Errós, The Saga of American Comics, opnuð í höfuðstöðvum UNESCO í París. Sendiráð Íslands í París hefur verið að skipuleggja sýninguna í samstarfi við Erró, og var fjölmenni viðstatt opnunina.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, flutti opnunarræðu og færði Erró hamingjuóskir og þakklæti íslensku þjóðarinnar fyrir framlag hans til myndlistar. Erró var heiðraður af UNESCO og var honum veitt Picasso gullorða, hönnuð af Joan Miró, fyrir framlag hans til lista og framgangs hugsjóna stofnunarinnar. Sýningin stendur yfir til 28. maí.

Erró
Erró

Erró 2
Erró 2

Erró
Erró