Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) sendu þann 6. desember 2011 kvörtun á Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) vegna innleiðingar íslenskra stjórnvalda á reglugerð ESB um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla.

Íslensk löggjöf felur í sér innflutningstakmarkanir á fersku kjöti, og verða innflytjendur að sækja um leyfi og leggja fram gögn til Matvælastofnunar til þess að fá innflutningsleyfi.

SVÞ segir að ESA hafi nú komist að sömu niðurstöðu og SVÞ eftir rannsókn á málinu þess efnis að núgildandi löggjöf á Íslandi varðandi innflutning á fersku kjöti frá öðrum EES-ríkjum sé andstæð EES-samningnum. ESA telji að íslensk stjórnvöld ekki hafa sýnt fram á að núverandi fyrirkomulag megi réttlæta með þeim rökum að það sé nauðsynlegt til að vernda líf og heilsu manna og dýra. Þau vísindalegu gögn sem íslensk stjórnvöld hafi framvísað renni ekki stoðum undir gildandi reglur heldur sýni þvert á móti að áhætta á sýkingu búfjár gegnum innflutning á fersku kjöti sé hverfandi.

Segir í tilkynningu SVÞ að ESA hafi sent álit sitt á íslensk stjórnvöld þar sem staðfest sé samningsbrot íslenska ríkisins gagnvart skuldbindingum þess við EES-samninginn. Verði ekki gripið til ráðstafana geti ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.