Eva Bryndís Helgadóttir og Jónas Þór Guðmundsson, bæði hæstaréttarlögmenn, gefa kost á sér í formannskosningu í Lögmannafélagi Íslands, en kosningin fer fram á aðalfundi félagsins á morgun, miðvikudag. Eva Bryndís er einn eigenda lögmannsstofunnar Mandat og Jónas er eigandi stofunnar Lögmenn Strandgötu 25.

Brynjar Níelsson hefur verið formaður LMFÍ undanfarin tvö ár og hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í þetta sinn, en samkvæmt samþykktum félagsins má formaður ekki sitja lengur en þrjú ár samfleytt í embætti.