Hlutabréf í Evrópu hafa hækkað lítillega í morgun. Hækkanirnar eru innan við 1%. Þýska Dax vísitalan hefur hækkað um 0,96%, CAC í Frakklandi hefur hækkað um 0,86% og FTSE í Bretlandi um 0,08%.

Markaðir í Bandaríkjunum lokuðu grænir í gær. Dow Jones hafði hækkað um 1,29% í viðskiptum gærdagsins, Nasdaq um 0,88% og S&P um 1,31%.